Notaleg íbúð í hjarta Gullna hringsins á Laugarvatni, örstutt frá Fontana og sundlauginni og vel staðsett fyrir Þingvelli, Geysi, Gullfoss og annað í nágrenninu.
Fjölskylda og vinir geta hér skoðað upplýsingar um íbúðina, séð hvenær hún er laus og sent inn beiðni um dvöl.
Íbúðin er rúmgóð og vel búin og hentar vel bæði fjölskyldum og litlum hópum. Eldhús, borðstofa og stofa eru saman í einu opnu rými og íbúðin er þannig góð fyrir samveru og lengri dvöl.
Hún er á jarðhæð, vel staðsett á Laugarvatni og stutt er í alla helstu þjónustu og afþreyingu í þorpinu.
Svefnpláss fyrir 5–7 gesti – Hjónaherbergi með king size hjónarúmi, aukaherbergi með kojum fyrir 2 fullorðna, aukarúm í stofu og svefnsófi fyrir tvo til viðbótar ef þarf.
Vel búið eldhús – uppþvottavél, Dolce Gusto frá Nescafé kaffivél og allt helsta til matseldar.
Rúmgóð borðstofa – stórt borð með 7 stólum og 4 kollum til viðbótar ef þarf.
Verönd og gasgrill – Eldra Weber gasgrill (þarf að kveikja í með kveikjara), útiborð og sæti fyrir 4.
Afþreying og fjarvinna – tvö sjónvörp, stór tölvuskjár, ljósleiðari og Wi-Fi.
Þvottavél og þurrkari – í sameiginlegu þvottahúsi í húsinu.
Sjálfsinnritun – lyklabox með kóða við inngang.
Innipúkinn - mikið af bókum, spilum, púslum og krakkaleikföngum
Herbergi og svefnaðstaða
Sængur og koddar fyrir allt að 7 gesti
Ferðarúm fyrir ungabörn
Barnastóll
Eldhús
Nóg af diskum, glösum, vínglösum, kaffikönnum, hnífapörum, skurðarhnífum etc
Pottar og pönnur
Hitakanna
Krydd, salt og pipar
Olía til steikingar
Eldhúsbréf
Efni fyrir uppþvottavél
Barnaborðbúnaður (stútkanna, plastdiskar, etc)
Baðherbergi
Klósettpappír
Handsápa
Þvottaefni fyrir þvottavél
Hárþurrka
Hreinlætisvörur og þrif
Klósetthreinsir
Hreinsiefni fyrir vask og utan um klósett
Ryksuga
Blautsápa
Skúringarfata og moppa
Rúmföt
Handklæði og baðhandklæði
Borðtusku og viskustykki
Sjampó og aðrar persónulegar snyrtivörur
Kaffipodda fyrir Dolce Gusto Nescafé vél (ef þið viljið kaffi)
Fontana – jarðböð og gufuböð, í um 2 mínútna göngufjarlægð. Nýlega enduropnað (1. ágúst 2026) eftir mjög miklar endurbætur, nýjar laugar og gufur.
Sundlaugin á Laugarvatni – sundlaug og líkamsrækt, einnig í um 2 mínútna göngufjarlægð.
Laugarvatn – hægt að njóta vatnsins, busla, veiða og ganga meðfram ströndinni.
Veitingastaðir og kaffihús – nokkrir valkostir eru í stuttri göngufjarlægð frá íbúðinni.
Vinastræti - lítið fjölskyldurekið veitingahús með súrdeigspizzum, smáréttum og fleiru. Er við Háholt þegar keyrt er í átt að Geysi út úr bænum.
Lindin Restaurant – rótgróinn veitingastaður og bistro við vatnið, á Lindarbraut 2, beint á móti íbúðinni.
Babylon Bistro – Héraðsskólanum – veitingastaður inni í Héraðsskólanum beint á móti íbúðinni með útsýni yfir Laugarvatn; opið fyrir morgunmat, hádegismat og kvöldmat samkvæmt núverandi upplýsingum.
Póstbarinn – Hótel Laugarvatni – bar og veitingaaðstaða á Hótel Laugarvatni, Dalbraut 10.
Laugarvatn Fontana – Kitchen & Café – kaffihús og léttari veitingar, súpa dagsins, kökur og m.a. rúgbrauðið sem bakað er í jarðhitanum.
Gönguleiðir - Margar skemmtilegar gönguleiðir eru á Laugarvatni
Laugarvatnsfjall – Stóragil Vestra – falleg fjölskylduvæn ganga með góðu útsýni.
Skógarleiðin undir Laugarvatnsfjalli – róleg og létt ganga um skóginn, vel merkt gönguleið.
Þingvellir – stuttur akstur frá Laugarvatni og einn af þekktustu stöðum landsins.
Geysir og Gullfoss – klassískir viðkomustaðir á Gullna hringnum og auðvelt að heimsækja frá Laugarvatni.
Laugarás Lagoon – nýr baðstaður í stuttri akstursfjarlægð.
Friðheimar – gróðurhús, veitingastaður og hestaumhverfi.
Sólheimar – vistvænt samfélag með verslun, kaffihúsi og gönguleiðum.
Flúðasveppir – áhugaverður viðkomustaður í uppsveitunum.
Fleira í nágrenninu – fjölmargir aðrir staðir, gönguleiðir og afþreying eru innan þægilegrar akstursfjarlægðar.
Þrífa eldhús og ganga frá öllu leirtaui.
Tæma og þrífa vask og eldhúsbekki.
Ganga frá matvælum og skilja ísskáp snyrtilegan.
Þrífa baðherbergi, salerni og vask.
Ryksuga íbúðina.
Skúra gólf eftir þörfum.
Tæma rusl og setja í rétt ílát.
Ganga frá grillinu og veröndinni ef það hefur verið notað.
Setja húsgögn og aðra hluti aftur á sinn stað.
Taka notuð rúmföt af rúmum og taka þau með.
Ganga frá þvottahúsinu ef það hefur verið notað og skila lyklinum á sinn stað.
Loka öllum gluggum og hurðum.
Draga gluggatjöld niður fyrir alla glugga.
Lækka á ofnum ef þörf er á.
Slökkva á ljósum og raftækjum eftir því sem við á.
Setja lykilinn aftur í lyklaboxið og ganga úr skugga um að það sé læst.
Láta okkur vita ef eitthvað hefur skemmst, bilað eða vantar.
Markmiðið er einfaldlega að skilja íbúðina eftir hreina og tilbúna fyrir næstu gesti.